Fornsögurnar

Sögurnar sem mótuðu víkingaöldina

Í safninu eru fágætar fornbækur þar sem Íslendingasögur og fornsögur Norðurlanda birtast í fyrsta skipti á prenti. Sögurnar sem mynda grunninn á alþjóðlegri þekkingu á víkingaöldinni og norrænu samfélagi þess tíma sem okkur þykir almennt í dag vera frekar sjálfsögð þekking.

Söguleg ritsöfn á borð við Heimskringlu Snorra Sturlusonar sem rituð voru á Íslandi eru enn í dag yfirgripsmestu frásagnarheimildir sem til eru um líf, átök, gildi og heimsmynd norrænna manna.

Persónur á borð við Egil Skallagrímsson og Njál Þorgeirsson eru okkur kunnar vegna þessara bókmennta, sem varðveita ekki aðeins einstakar sögur heldur einnig lifnaðarhætti fólks, hvernig fólk lifði eftir ákvæðum laga, heiðurs, ættartengsla og trúar. Án íslenskrar sagnahefðar væri stór hluti þeirrar þekkingar sem við höfum í dag á víkingum, leiðöngrum þeirra, samfélagsgerð og menningarlegum gildum ekki til.

Alþjóðleg þýðing

Mikilvægi þessara texta nær langt út fyrir landsteinana. Þeir hafa haft djúpstæð áhrif á evrópskar og alþjóðlegar bókmenntir og hafa veitt innblástur til heimsþekktra rithöfunda, fræðimanna og listamanna um aldir. Á það við um miðaldabókmenntir til nútímabókmennta og hafa frásagnir sem varðveittar eru í íslenskum bókum mótað ímynd heimsins af víkingaöldinni.

Það sem gerir þessar útgáfur sérstaklega mikilvægar er hlutverk þeirra í miðlun. Fyrstu prentuðu útgáfurnar tryggðu að sögurnar glötuðust ekki og gerðu sögunum kleift að miðla menningararfi Íslendinga sem og Norðurlanda. Fyrstu prentuðu útgáfurnar mynda brú milli miðalda og nútímans.

Lifandi heimildir

Þessi verk eru ekki einungis sögulegir gripir heldur einnig lifandi heimildir og með beinni nálgun að bókunum fá gestir Old Icelandic Books að upplifa þá texta sem enn í dag móta skilning okkar á víkingaöldinni. Íslenskur bókmenntaarfur er einstakur og að mörgu leyti helsta leið heimsins inn í fortíðina.

Scroll to Top