Biblíur og guðsorðabækur

Trú, tónlist og prentlist

Í safni Old Icelandic Books er að finna mikið og fjölbreytt safn biblía og annarra guðsorðabóka sem endurspegla mikilvægan þátt í íslenskri og evrópskri bókmennta- og menningarsögu. Þar má finna íslenskar biblíur ásamt fornum biblíum á ýmsum öðrum tungumálum.

Þá eru þar einnig aðrar þekktar íslenskar guðsorðabækur sem hafa gegnt lykilhlutverki í lífi þjóðarinnar eins og Grallarinn, Leirgerður og Saltarinn auk fleiri þekktra og áhrifamikilla bóka sem hafa mótað trúarhefð og menningu Íslands.

Þessar bækur bera með sér sögu trúar, tónlistar og prentlistar sem og menningarlegrar þróunar. Þær veita innsýn í það hvernig kristin trú og ritmenning hafa þróast á Íslandi og hvernig íslenskt mál og bókmenntir hafa varðveist í bókunum.

Í safni Old Icelandic Books eru þessi verk ekki aðeins varðveitt sem sögulegir gripir heldur einnig sem lifandi heimildir um hugmyndir, trú og menningu liðinna alda. Með því að kynna gestum þessi einstöku rit og leyfa þeim að snerta þau og blaða í þeim, opnast enn einn glugginn inn í íslenskan menningararf.

Scroll to Top