Fagráð
Fræðileg ráðgjöf og menningarleg heilindi
Hópur sérfræðinga sem tryggir fræðilegt dýpt og menningarlega ábyrgð.
Að baki Old Icelandic Books er sérstakt fagráð sem skipað er sex sérfræðingum á sviði íslenskra fræða s.s. bókmennta-, handrita- og þjóðfræði. Ráðið starfar sem sjálfstæð fræðileg eining og veitir faglega ráðgjöf um þróun Old Icelandic Books, framsetningu efnis og miðlun þess til almennings.
Meginhlutverk ráðsins er að meta með hvaða hætti Old Icelandic Books geti sem best þjónað samfélaginu. Það felur í sér ráðgjöf um framsetningu á sögulega rökstuddri túlkun fágætra bóka og handrita. Sérstök áhersla er lögð á að framsetning efnis á vegum Old Icelandic Books, svo sem á samfélagsmiðlum, sé með þeim hætti að það kveiki áhuga á íslenskum bókmenntum, íslenskri tungu og sögu.
Með þessu er Old Icelandic Books ekki aðeins einkasafn heldur menningarverkefni. Starf ráðsins tryggir að fágæt rit séu sett í samhengi og miðlað með þeim hætti að þau ýti undir áhuga og haldi jafnframt gildi sínu fyrir samtímann.
Roberto Luigi Pagani
Skandinavísk fræði · Handritafræði
Roberto Luigi lauk BA-gráðu í skandínavískum fræðum frá Háskólanum í Mílanó árið 2013 og MA-gráðu í íslenskum miðaldafræðum frá Háskóla Íslands árið 2015, ásamt viðbótarnámi við Háskólann í Edinborg.
Roberto hefur um árabil kennt við Háskóla Íslands, meðal annars handritafræði, forníslensku og íslenska málfræði. Samhliða fræðistörfum hefur hann lagt sig fram um að kynna íslenskan menningararf á alþjóðavettvangi, einkum í gegnum verkefnið „Un Italiano in Islanda“, sem er stærsta upplýsingaveitan um Ísland á ítölsku.
Hann hefur haldið fyrirlestra og komið reglulega fram í ítölskum fjölmiðlum, gegnt stjórnarstörfum í ítalsk-íslenska viðskiptaráðinu, skrifað fræðigreinar og blaðagreinar.
Roberto hefur þá gefið út þýðingar á íslenskum miðaldatextum og má þar nefna Kjalnesingarsögu sem kom út á ítölsku árið 2023 við miklar vinsældir. Fjöldi annarra bóka liggja eftir Roberto, þar á meðal ferðahandbókin „Iceland“ fyrir National Geographic og umfangsmikil þýðing á íslenskum þjóðsögum úr safni Jóns Árnasonar árið 2024 með ítarlegum skýringum og viðaukum. Roberto er einnig mikill áhugamaður um fornbækur og handrit.
Kári Pálsson
Þjóðfræði · Norræn trúarbrögð · Fornfræði
Kári Pálsson er þjóðfræðingur, fornfræðingur og tónlistarmaður. Hann sérhæfir sig í forníslenskum bókmenntum, heiðnum trúarbrögðum Norðurlanda og íslenskum þjóðtrúarhefðum. Kári lauk meistaragráðu í norrænni trúarbragðafræði við Háskóla Íslands árið 2023.
Fyrsta rit hans, The Galdrabók: Forbidden Icelandic Folk Magic (2024), sem gefið var út hjá Hyldyr, vakti strax mikla athygli og hefur þegar öðlast sess sem áhrifamikið verk á sínu sviði. Í bókinni er handritið Jarðskinna meðal annars birt í fyrsta sinn og hefur útgáfan þegar haft veruleg áhrif á rannsóknir og áhuga á efninu.
Árið 2025 var Kári meðhöfundur að verkinu Galdrastafir: Historical Icelandic Magic Symbols (2025) ásamt Giorgia Sottotetti.
Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík
Íslenskar bókmenntir · Miðaldafræði · Rímur
Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík er með BA-gráðu í bókmenntafræði og þjóðfræði, MA-gráðu í miðaldafræði og doktorsgráðu í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands.
Hún starfar nú sem rannsakandi á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, þar sem hún vinnur við verkefnið Byltingin að ofan: Alþýðuvæðing rímna 1550-1725.
Hún hefur gefið út textaútgáfur áður óútgefinna sagna og rímna og má þar nefna bókina Hetjur fyrri alda sem kom út árið 2023. Einnig hefur Teresa skrifað bækur um íslenskar rúnir m.a. bókina Íslenskar rúnir sem kom út árið 2018 og gefið út ljóðabækur.
Þorsteinn Björnsson
Íslenskar bókmenntir · Rímur · Kennsla
Þorsteinn Björnsson er með BA-gráðu í íslensku og MA-gráðu í íslenskum bókmenntum. Hann hefur jafnframt lokið viðbótardiplómu í framhaldsskólakennslu og öðlaðist kennsluréttindi árið 2024.
Hann stundar nú doktorsnám í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands. Doktorsverkefni hans snýr að rímum á elsta skeiði, þar sem leitast er við að greina tilfinningar í mansöngvum rímna og birtingarmyndir kvenna í þeim. Verkefnið hlaut styrk úr doktorsstyrkjasjóði Háskóla Íslands.
Þorsteinn er Borgfirðingur og ólst upp á Hvanneyri en hefur haft annan fótinn í Reykjavík frá árinu 2012.
Giulia Zorzan
Handritafræði · Bókagerð · Sagnfræði
Giulia Zorzan er með BA-próf í sænskum og enskum tungumálum og bókmenntum og MA-próf í germönskum fræðum og textafræði frá Háskólanum í Mílanó, sem og MA-próf í íslenskum miðaldafræðum frá Háskóla Íslands, þar sem hún stundar nú doktorsnám í sagnfræði.
Í doktorsverkefni sínu rannsakar Giulia litanotkun og bókagerð í elstu íslensku miðaldahandritunum og handritabrotum. Verkefnið hlaut styrk úr Doktorsstyrkjasjóði Háskóla Íslands sem og úr sjóði Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís).
Piergiorgio Consagra
Íslenskar miðaldabókmenntir · Handritafræði · Kennsla
Piergiorgio Consagra, einnig þekktur sem Pétur, er með BA-próf í íslensku sem öðru máli, MA-próf í íslenskum miðaldafræðum og viðbótardiplómu í háskólakennslufræði frá Háskóla Íslands, sem og BA-gráðu í norskum og þýskum tungumálum og bókmenntum frá Háskólanum í Mílanó.
Hann stundar nú doktorsnám í íslenskum miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands, þar sem hann hefur starfað sem aðjunkt í íslensku sem öðru máli. Doktorsverkefni hans fjallar um svokallaða þætti úr íslenskum miðaldabókmenntum og beinir sjónum að þeim miðaldahandritum sem varðveita þá, heimildum sem liggja þeim til grundvallar og menningarlegu samhengi þar sem þeir voru ritaðir. Verkefnið hlaut styrk úr sjóði Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís).
Upplifðu safnið
Kynntu þér hinar fágætu bækur og handrit sem fagráðið aðstoðar við að varðveita og kynna.
BÓKAÐU UPPLIFUN