Fyrirlestrar og námskeið

Dýpri innsýn í íslenskan menningararf

Old Icelandic Books býður upp á vandaða fyrirlestra sem veita dýpri innsýn í íslenskan bókmennta- og menningararf. Fyrirlestrarnir byggja á frumheimildum. Framsetning þeirra byggir á fræðilegri nálgun sem sameinar sögulega nákvæmni og lifandi frásögn.

Að bjarga bók

Að bjarga bók er fyrirlestur sem fjallar um upphafið að Old Icelandic Books og ferlinu við að finna, endurheimta og varðveita fágætar bækur, handrit og önnur rit. Fyrirlesturinn varpar ljósi á þá viðkvæmu og oft krefjandi vinnu sem felst í að bjarga menningarverðmætunum frá glötun og hefur vakið mikla athygli og jákvæð viðbrögð meðal þeirra sem á hafa hlýtt.

Sérsviðsfyrirlestrar

Old Icelandic Books býður þá upp á fjölbreytta fyrirlestra á sérsviðum íslenskrar menningar og fræða, þar á meðal:

Íslenskra rúna og merkingar þeirra í sögulegu samhengi. Forníslensku og þróunar íslensks máls. Íslenskra handrita og varðveislu þeirra í gegnum aldirnar. Galdra og galdramenningar á Íslandi fyrri tíma.

Hver fyrirlestur er byggður upp með það að markmiði að veita skýra og fræðilega dýpt án þess að missa tengingu við lifandi menningararf. Sérstök áhersla er lögð á að setja efnið í samhengi við frumheimildir og sýna hvernig þessir þættir hafa mótað skilning okkar á fortíðinni.

Fyrirlestrarnir henta jafnt áhugasömum gestum sem þeim er leita að dýpri fræðilegri innsýn og bjóða upp á einstakt tækifæri til að nálgast íslenska sögu og menningu í gegnum þær heimildir sem hafa varðveitt hana.

„Handritanámskeiðið var ótrúlegt. Að lesa forníslensku beint úr miðaldaheimildum undir leiðsögn sérfræðings var einstakt tækifæri.“

– Prof. Elena V., Ítalía

„Galdranámskeiðið breytti algjörlega skilningi mínum á íslenskum þjóðtrúarháttum. Nákvæmt, heillandi og ólíkt öllu sem ég hef upplifað áður.“

– David P., Kanada

Bóka námskeið

HópastærðAllt að 6 gestir
Lengd60 – 90 mínútur
Verð250.000 kr.
BókunAð minnsta kosti 1 mánuði fyrirfram
Tímar18:00 / 20:00
Bóka á Viator
Scroll to Top