Einkasýning

Einstök upplifun

Old Icelandic Books býður upp á einstaka upplifun þar sem gestum gefst kostur á sérsniðinni sýningu þar sem veittur er aðgangur að einu sérstæðasta safni fornbóka í heiminum. Hér er veitt aðgengi að sumum fágætustu menningarverðmætum þjóðarinnar.

Þetta er ekki bara heimsókn heldur einstakur aðgangur að fortíðinni sem á engan sinn líkan.

Fólk fær leiðsögn og kennslu í meðhöndlun fornbóka og fágætra handrita. Sögumaðurinn útskýrir sérstaklega hvernig skal bera sig að, allt frá því að halda á einstökum ritunum yfir í það hvernig pappír er flett, sem aðallega er gerður úr bómull. Fyrstu prentuðu útgáfur hinna heimsfrægu Íslendingasagna og annarra fornsagna Norðurlanda eru birtar fólki, rit sem hafa lagt grunninn að þekkingu og skilningi umheimsins á víkingaöldini. Þá eru bækurnar á bak við upplýsingaöldina á Íslandi kynntar ásamt elstu biblíum landsins og annarra landa.

Sérsniðin upplifun

Aðgengi er meðvitað takmarkað og hver sýning er einstök og sérsniðin að gestum hverju sinni.

Með takmörkuðum fjölda gesta á hverri sýningu er tryggt að upplifunin haldi sérstöðu og dýpt, þar sem raunveruleg samskipti og fræðileg nálgun fá að njóta sín.

Einkasýning Old Icelandic Books er einstök leiðsögn inn í fortíðina þar sem gestum gefst kostur á að upplifa aldagömul rit sem hafa mótað skilning umheimsins á fortíðinni.

Einkasýning Old Icelandic Books býður upp á eitthvað alveg einstakt — sérlega fágæta upplifun fyrir fólk sem vill eitthvað meira en heimsókn á safn.

„Að halda á fyrstu útgáfu saganna var eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Frásögn Eyþórs blés lífi í hverja blaðsíðu.“

– Catherine D., Frakkland

„Náin og djúp upplifun. Aðgangurinn að þessum fágætu ritum er einfaldlega óviðjafnanlegur hvar sem er í heiminum.“

– Mark og Helen R., Ástralía

Bókaðu upplifun

HópastærðAllt að 6 gestir
Lengd50 – 60 mínútur
Verð85.000 kr.
BókunAð minnsta kosti 1 degi fyrirfram
Tímar10:00 / 16:00 / 18:00
Bóka á Viator
Scroll to Top